þriðjudagur, júní 28, 2005

Djammari

Jeeee. Í gær fór ég á Hróaskeldu. Eftir að hafa beðið í röð og rölt smá um vestur svæðið fann ég loksins Haffa og Guðnýu vinkonu hans. Þau voru bara að kæla í tjaldbúðum okkar, búin að setja upp mitt tjald og allt. Við höfðum talað saman í einhvern hálf tíma þegar Atli, Bessi og Siggi, vinir Haffa, komu til baka frá Skátabúðinni.

Við sátum með öl og spjölluðum í nokkra tíma þangað til við fórum til Kaupmannahafnar. Þar löbbuðum við niður Strikið þangað til við fundum einhvern Ítalskan veitingastað. Þar fengum við okkur pizzu og vatn/gos, pizzan var samt ekkert sérlega góð. Rétt eftir níu vorum við svo mætt á Hovedbane. Þar ætluðum við að hitta Sigga T og Höllu sem búa í Kaupmannahöfn. Þau ætluðu að fylgja okkur, og koma með, á tónleika með ...And You Will Know Us By The Trail Of Dead. Við vorum svo mætt fyrir utan Loppen í Christianíu kortér í tíu.

Við sátum öruglega hálf tíma fyrir utan staðinn áður en það byrjaði að hleypa inn. Þegar inn var komið blasti svo við okkur þetta flotta pleis. Ég byrjaði á því að kaupa mér bol á 150 dkk og svo fundum við okkur stóla og settumst. Upphitunarbandið byrjaði sirka kortér yfir ellefu og var það glaatað. Næst tók við sirka fjörtíu mínútna bið eftir Trail Of Dead, en þegar þeir byrjuðu urðu allir hressir. Hljómsveitin gekk inn meðan intro'ið á World's Apart var spilað.

Þeir eru sex, held ég, í bandinu og skiptust fjórir mjög mikið á hljómfærum og söng. Í flest öllum lögunum voru tvö trömmusett notuð. Tónleikarnir voru geeðveikir, en því miður sáum við þá ekki alla því við vorum ekki viss hvort það væru einhverjar næturlestir til Hróaskeldu.

Þegar við vorum komin til Hróaskeldu þurftum við svo að taka Taxa til svæðisins. Taxí-bílstjórarnir voru mjög almennilegir og keyrðu rösklega að svæðinu. Við settumst svo undir Partýtjaldinu okkar í tjaldstólunum í hálf tíma áður og spjölluðum áður en við fórum að sofa.

Um morguninn var vaknað klukkan tíu og lagt af stað aftur til Kaupmannahafnar klukkan ellefu. Þar kvaddi ég teitið og hélt af stað til Jobba, Eyrúnar, Ásdísar og Birkis. Okkur var svo boðið í mat til mömmu og pabba Eyrúnar. Þar var boðið upp á Taco, helvíti gott, og borðaði maður þrjú kvikindi. Maður þarf smá forða fyrir hátíðina.

Á morgun koma svo Jón Gísli, Sverrir, Finnur og Gummi, held að það séu ekki fleiri, og ætlum við að gista á Hosteli í Kaupmannahöfn. Við ætlum þó einnig að fara til Hróaskeldu til að sjá Lack klukkan hálf fimm.

Þangað til næst, athygliverð frétt og kveðjur frá Kaupmannahöfn, bléé.

mánudagur, júní 20, 2005

Farvel Uldum

Á föstudeginum var síðasta kvöldið í skólanum. Var matsalurinn uppdekkaður og boðið upp á góðann mat og mættu flestir með vín eða öl. Eftir matinn var sungið úr Lýðháskólasöngbókinni og voru mörg skemmtiatriði. Við íslendingarnir, Sasja, Cassandra og Eva Z vorum með smá atriði og svo gáfum við kennurunum staupglös, litlar brennivíns flöskur og rósir.

Um kvöldið var svo teiti eins og alltaf á barnum. Var þar mikið fjör og mikið gaman. Fórum nokkur í bakaríið klukkan 6 um morguninn og svona. Hálf níu var svo farið í seinasta morgunmatinn. Klukkan níu var síðasta morgunsamkoman og svo var klárað að pakka og gera herbergið skínandi hreint. Í hádegismat fengum við hakk&spagetti. Eftir matinn kvöddu allir kennarana og gaf ég skólanum bók um Akureyri. Margir byrjuðu að gráta, og höfðu reyndar byrjað daginn áður, og var þetta mjög tilfinningarík klukkustund að kveðja alla vini sína.

Ég, Summi og Sandra fengum svo far með Andersi og pabba hans í sendibíl. Þeir skutluðu okkur til Vejle og eins og alltaf hafði hraðlestinni seinkað smá svo við gátum hoppað upp í hana. Ég kvaddi svo Summa og Söndru á Hovedbane og tók mína lest til Vedbæk. Þar sótti Þeyr mig og var lagt af stað til Eyrúnar og krílanna.

Krílin eru algjört æði, íííh, og verður gaman að hjálpa til næstu vikuna. Myndir fyrir þá sem vilja á Myndasíðu Linnet, Þeyr og þau.

Mamma og pabbi koma til Kaupmannahafnar í dag. Einnig eru pabbi, Jobbi og að fara til Minden, Þýskalandi og komum við aftur á morgun, seinni partinn held ég. Mamma verður þá að hjálpa Eyrúnu og skemmta sér með krílunum.

Sunnudaginn 26. fer ég á tónleika með ...And You Will Know Us By The Trail Of Dead í Loppen í Christiania. Þrítugasta byrjar Hróaskelda, en ég mun hitta strákana fyrr og gista með þeim í miðborginni.

Ég á svo pantað flug til Íslands þann sjötta júlí, veit ekki hvenær ég kem til Akureyrar. Meira um það seinna.

Hej hej.

þriðjudagur, júní 14, 2005

4 dagar eftir

Síðasta föstudag fórum við Summi til Vejle. Þar var farið á McDonald's og Stereo Studio. Keypti ég mér:

Mallrats á 50 dkk,
Dogma, Requiem for a Dream og The Big Lebowski saman á 100 dkk,
Fantomas - Suspended Animation og
Pulp Fiction - Soundtrack.

Síðasta helgi var fínt kvikindi. Á föstudeginum var uppboð fyrir Tanzaníuferð skólans.
Á laugardeginum var svo Gallafest. Síðir kjólar, jakkaföt, fordrykkur, þriggja rétta máltíð og teiti í íþróttasalnum. Í salnum var svo tilkynnt helling af viðurkenningum, svo sem útlendingur ársins, beib, rass, hözzler og fleira. Einnig var valið um par kvöldsins, töffara og gellu.
Hér eru nokkrar myndir af mér og deitinu mínu. Elise frá Kanada.

Á morgun fer ég svo í golf og klukkan 5 minnir mig byrjar hár-festival.

Blé og já, ég er núna strand/sundlaugarvörður, mega.

þriðjudagur, júní 07, 2005

Jemm. Sólbrenndi Jobbi minn átti afmæli í gær, 6/6. Í dag á Eyrún afmæli, 7/6. Nú eru þau 26 ára gömul, með nýfædda tvíbura og skrifandi masters verkefnið sitt. Til hammó.

Í dag, eftir einn og hálfan tíma, er ég að fara í göngu og sofa úti og eitthvað dresl. Þetta verður án efa skemmtilegt þar sem meiri hlutinn fer með strætó, en einhverjir rugludallar ákváðu að hjóla 25km að staðnum sem við gistum á.

blé

p.s. til hamingju með prófin menntskælingar, vonandi gekk öllum vel.

laugardagur, júní 04, 2005

Föðurbróðir

Eyrún skrifaði: "Stóra systir fæddist 2500gr og 48cm þann 2/6 '05 kl. 17:41 og litli bróðir fæddist 2900gr og 49cm þann 2/6 '05 kl. 17:54."
Jemm, nú er maður orðinn 'alvöru' föðurbróðir.

Aðfararnótt föstudags var ég að vinna í heimasíðunni sem ég var að gera í Projektfaginu. Gekk það bara vel og skreið ég upp í rúm klukkan fjögur. Svaf ég góða þrjá og hálfan tíma og mætti hress til að kynna verkefnið með restinni af Projektfagskrökkunum.

Eftir drullu erfiðan tíma í Boldspil fengum við góðan mat, sem gerist "aðeins einusinni á öld, þegar tunglið er í..." og þið ættuð að vita restina. Eftir mat las ég í Livredning bókinni um fyrstuhjálp, hjartahnoð og öndun.

Þegar Livrednings tíminn var búinn var þreytan farin að segja ansi mikið til sín og skellti ég mér því upp í rúm með Sigur Rós - ( ). Klukkan var þá hálf 4 og vaknaði ég ekki fyrr en klukkan átta. Skellti mér í föt og fór á Pizzaríað þar sem Tyrkinn vissi hvað ég fæ mér alltaf, pepperóni og rauða papríku, mm.

Í Café'inu var Las Vegas kvöld. Eitt Texas Hold'em borð, eitt Roulette og tvö Blackjack. Maður þurfti að kaupa spilapeningana, 20 á 5 DKK, og gat maður ekki keypt aftur. Ég byrjaði á því að fara í póker. Eftir 2-3 umferðir setti ég allt í með flush, kong hæstann. Thorbjørn sá mig og var hann með fucking ásinn. Tapaði ég öllu nema einum peningi því Thorbjørn var ekki með jafn mikla peninga og ég. Vann ég næsta leik og átti ég því 4 peninga. Þegar ég átti svo 2 peninga tilbaka fór ég í Roulette.

Summi átti fjóra peninga og ég tvo. Settum við báðir á rauðann í Roulette og kom helvítis 0! Frekar mikið drasl það. Með núll settumst við Summi á Blackjack borðið hjá Elise og fengum við 2 peninga hvor frá henni. Eftir að hafa tapað þeim eftir 10 spil eða svo gaf Morten mér 4 peninga. Setti ég allt inn og vann.

Elise hætti þá eftir smá að vera dealer og kom þá besti dealer í upphafi Blackjacks að gefa. Nefnilega ég, með 'mína' 8 peninga. Eftir að hafa rústað öllu í drasl, og fá 3x Blackjack (Kongaspil og ás) þá endaði ég með 128 peninga.

Arlavega, þetta var gott kvöld. En núna er ég farinn að taka til í Café'inu, vúh.

fimmtudagur, júní 02, 2005

Noregsferð með meiru

Jæja. Í dag var Eyrún sett af stað með tvíburana og vona ég hennar vegna að krílin komi ekki í heiminn 3. júní.
Í dag eru einnig 17 dagar í skólaslit, 25/29 dagar í Roskilde og 35 dagar þangað ég kem til Íslands, vúúh.

Annars var Noregur schnelld. Var í kofa með Summa, Söndru, Sösju, Elísu og Stínu. Helvíti magnað; gufubað, arinn og sjónvarp.
Á sunnudeginum fór ég í reiðtúr á íslenskum hesti sem heitir Rá. Skemmtilegast var þegar hann ákvað að fara í þriðja gír upp úr læk og upp brekku og inn í skóginn þar sem hann þurfti að taka snögga beygju framhjá tré. Ekki beint framhjá trénu því hann fór útan í grenitréið þannig vinstri löppin mín sveiflaðist upp og ég var næstum dottinn. Þegar ég reyndi að setjast aftur beygði hann til vinstri framhjá öðru grenitré þannig ég datt af, heheh. Gaman að því.

Eftir reiðtúrinn fórum við til Lillehammer og nokkrir prufuðu bobsleðabrautina. Þegar við komum svo heim hafði ég einn tíma til að taka mig til því ég var að fara að gista úti og eitthvað.
Við löbbuðum um kvöldið 3-4 kílómetra og fundum góðan stað til að setja upp skýlið. Þar borðuðum við og kveiktum varðeld.
Daginn eftir löbbuðum við svo hátt í 10 km, held ég, en vorum svo sótt af öðrum langferðabílnum okkar.

Á þriðjudeginum var það svo rafting. Það var helvíti gaman. Ég var með Summa, Anders, Allan, Kenneth og Thorbjørn í bát og var Charlie frá Zimbabwe með okkur. Hérna eru myndir frá mínum bát: http://flickr.com/photos/holmar.

Seinustu daga var bara kælt, en á heimferðinni komum við við í Lillehammer og var auðvitað farið á McDonald's. Í ferjunni var svo teiti eins og á leiðinni til Noregs.

Var eitthvað fleira sem ég ætlaði að skrifa, en það er kominn matur. Blazar

miðvikudagur, júní 01, 2005

Bitz

Okey, ég er kominn langleiðina með nýtt blogg, en hef ekki tíma til að klára það því það er pókerkvöld núna eftir 5 mínútur. Blé